Profile avatar
svavan.bsky.social
2,826 posts 235 followers 123 following
Regular Contributor
Active Commenter

open.spotify.com/track/6NPVjN... Setti þennan æðislega slagara á fóninn í lok kennslu í dag. Allir fóru glaðir út😊🥳

Elska að fara í nemendaleikhús. Elska gredduna og hráleikann og ungdóminn og orkuna. Lifi ennþá á laugardagskvöldinu þegar ég fór að sjá útskriftarverkefnið Leg í Kassanum🥳🤩

Sumir hafa svo mikinn sjarma að maður segir fyrirgefðu þegar þeir þurfa að standa upp fyrir manni. Mikið ofboðslega er Baltasar myndarlegur maður🤩

Hringdi í Sundhöllina til að athuga hvort það væri ekki örugglega opið. Strákurinn í símanum var svo hissa. Maður minn, ég er búin að fara svo margar fýluferðir þangað undanfarið að jú, strákur, auðvitað hringi ég á undan!

Each day I’m becoming more and more like my mother

Alheimurinn er svo fyndinn. Já, bað um félagsskap og vera með fólki. Það er að fara gerast á laugardaginn. Útskriftarveisla og leikhús er gott plan en að bæta hitting alls 2013 árgangar í Nauthólsvík við þetta er bara algert overkill😝

Bið alla góða vætti um venjulegan svefn í nótt. Þennan sem maður vaknar úthvíldur frá og þann sem varir í minnst 7 tíma🙏

Skráði mig í fb grúppuna Leikarar og aukaleikarar á Íslandi. Bara í einhverju djóki. Í gær var verið að auglýsa eftir konum á aldrinum 25-45 ára sem eru jákvæðar og blablabla en það skipti ekki máli af því að ég er hvort sem er of gömul😭

open.substack.com/pub/sifsigma... Það er orðin ljúf hefð hjá mér á laugardagsmorgnum að lesa pistil eftir Sif á Substack. Hey, ég gat deilt beint hingað. Þarna var Bluesky takkinn í share🥰

open.spotify.com/track/6Qb7gt...

Annarra eða annara? Þegar ég er að tala um annað fólk. Til dæmis áhugaleysi annarra (eitt eða tvö r)